Þingið sýnir völd sín
23.2.2009 | 23:36
Óvanalegur atburður átti sér stað í þingi okkar íslendinga þegar einn þingmaður, Höskuldur Þórhallsson, greiddi atkvæði um að fresta atkvæðagreiðslu í nefnd í 48 klukkustundir vegna þess að honum þótti mikilvægt að hlusta og fara eftir ráðleggingu sérfræðings JP Morgans bankans.
Þingmenn allra flokka hafa kvartað undan því hve lítil völd þingið hefur en nú hefur komið í ljós eins og margir hafa bent á að þingið hefur þau völd sem það vill taka sér. Sorglegt er að heyra froðusnakkana vera að tala um aukaatriði málsins þ.e. hvort framsókn sé klofin eða ríkisstjórnin sprungin.
Málið snýst einfaldlega um stöðumat. Með því að kýla frumvarpið í gegn líkt og alltaf hefur tíðkast gæti frumvarpið eins verið úrelt þegar að skýrsla um þessi málefni verður birt á vettvangi ESB í vikunni. Hlutverk þingmanna er að tryggja það að lög sem samin eru á alþingi sé af háum gæðum þ.e. standist tímans tönn (allavega fram yfir helgi).
Sem jafnaðarmaður vil ég bara þakka Höskuldi fyrir að sýna hugrekki til að vinna sína vinnu og vonandi taka aðrir hann til fyrirmyndar.
|
Framsókn skekur ríkisstjórnina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.