Þingið sýnir völd sín

Óvanalegur atburður átti sér stað í þingi okkar íslendinga þegar einn þingmaður, Höskuldur Þórhallsson, greiddi atkvæði um að fresta atkvæðagreiðslu í nefnd í 48 klukkustundir vegna þess að honum þótti mikilvægt að hlusta og fara eftir ráðleggingu sérfræðings JP Morgans bankans.

Þingmenn allra flokka hafa kvartað undan því hve lítil völd þingið hefur en nú hefur komið í ljós eins og margir hafa bent á að þingið hefur þau völd sem það vill taka sér. Sorglegt er að heyra froðusnakkana vera að tala um aukaatriði málsins þ.e. hvort framsókn sé klofin eða ríkisstjórnin sprungin.

Málið snýst einfaldlega um stöðumat. Með því að kýla frumvarpið í gegn líkt og alltaf hefur tíðkast gæti frumvarpið eins verið úrelt þegar að skýrsla um þessi málefni verður birt á vettvangi ESB í vikunni.  Hlutverk þingmanna er að tryggja það að lög sem samin eru á alþingi sé af háum gæðum þ.e. standist tímans tönn (allavega fram yfir helgi). 

Sem jafnaðarmaður vil ég bara þakka Höskuldi fyrir að sýna hugrekki til að vinna sína vinnu og vonandi taka aðrir hann til fyrirmyndar.

 


mbl.is Framsókn skekur ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprotar og englar

Englafjárfestar eru sú tegund fjárfesta sem oft má kalla hugsjónafjárfesta, eða í það minnsta fjárfesta sem sætta sig við afar mikla áhættu á háu verði. Englafjárfestar eru ákaflega mikilvægir fyrir nýsköpun í hagkerfum því oftast nær hafa þeir sjálfir efnast á frumkvöðlastarfsemi og þekkja vel innviði sprotafyrirtækja.

Ávöxtunarkrafa á sprotafyrirtækjum er oft á bilinu 30-60% og áhættan í samræmi við þá kröfu. Sprotafyrirtæki eru í samkeppni um fjármagn og há ávöxtunarkrafa er það eina sem þau geta boðið fjárfestum. Þegar ávöxtun á bankabók er farin að gefa 100% öryggi ásamt 20% vexti þá er erfitt fyrir sprotafyrirtæki að fá inn fé frá englum. Reikningsdæmið er einfalt 30% ávöxtun með mikilli óvissu vs. 20% ávöxtun með 100% öryggi. 

Hvernig má þá snúa dæminu við hér á Íslandi?
Mikið hefur verið rætt um það að veita skattafslátt til þeirra sem fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Hugsa má dæmið þannig veittur sé skattafrádráttur sem nemi ákveðnu hlutfalli af kaupverði fjárfestis í fyrirtæki. Selji fjárfestirinn með hagnaði þarf hann þá að endurgreiða þann skattafrádrátt sem hann fékk upphaflega. Með þessu móti er ríkið að taka áhættu með fjárfestinum en um leið fá sitt til baka ef vel gengur.

Dæmið gæti litið svona út.

Kaupverð: 1.000.000 kr. 

Skattafrádráttur: 10% eða 100.000 kr

Ef síðan fjárfestirinn selur á 1.500.000 kr þá greiðir hann til baka 100.000 kr til ríkisins en hefur sjálfur grætt 400.000 kr á fjárfestingunni.

Með þessari nálgun geta fjárfestar litið svo á að þeir séu í raun að kaupa á lægra gengi í sprotafyrirtækjum en uppsett gengi er. 

Að mínu mati er mjög mikilvægt að kraftar englafjárfesta sé virkjaðir og þeir sjái sér betur hag í því að setja sinn pening í sprotafyrirtæki í stað þess að geyma þá á bankabók.


Gátu þeir ekki talað saman?

Vantar sárlega í svona samskiptabúnað eins og fjarskiptahnetti að þeir hafi collision detection í gangi.
mbl.is Fjarskiptahnettir rákust saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um afleidd störf

Reglulega heyrist í fréttum að hin og þessi starfssemi geti af sér X mörg afleidd störf. Dæmi um þetta er Norðurál sem gefur af sér 1000 afleidd störf og síðan er því haldið fram að fyrir hvert starf í bankaþjónustu gefi af sér 2.5 afleidd störf.

Spurningin mín er því hvaða starfssemi hefur í för mér sér engin afleidd störf eða jafnvel neikvæð afleidd störf?

Svarið er að meðan þörf er á starfi þá leiðir það af sér önnur störf. En þegar að þörfin minnkar eða var ofmetin (ala fjárfestingabankar) þá hverfa öll afleiddu störfin. Þeim mun fleiri sem afleiddu störfin eru af atvinnuveg, þeim mun meiri áhætta er það fyrir efnahag lands og atvinnustig. 

Útfrá hagsmunum þjóða, sé vilji til að dreifa áhættu af einsleitu atvinnuumhverfi, þá er það ekki endilega góðar fréttir þegar menn tala um það í fjölmiðlum hversu mörg þúsund afleidd störf fylgi atvinnugrein. 


Bankaleynd þegar hentar

Eftir að ég las yfirlýsingu Tryggva Jónssonar þá var mér hugsað til buzz word dagsins þ.e. "bankaleynd".

í yfirlýsingu sinni segir Tryggvi meðal annars þetta.

"Í lok október sl. var fyrirsjáanlegt að ekki yrði hægt að forða Árdegi frá gjaldþroti.  Árdegi átti á þessum tíma fundi með Fyrirtækjasviði og var ég beðinn um að koma þar að.  Á fundinum lýsti forstjóri Árdegis yfir áhyggjum af því að geta ekki greitt starfsmönnum sínum laun vegna októbermánaðar.  Sala á einingum frá félaginu til að eiga fyrir launum var rædd.

Forstjóri Árdegis sagði aðspurður að Sena væri líklegasti kaupandinn að Skífunni og Hagar eða Max Raftæki kaupendur að BT tölvum.  Ég spurði hann hvort hann vildi að ég hringdi í stjórnendur þessara fyrirtækja til að koma á sambandi og vildi hann það."

Og hér eru svo lögin sem hann gæti hafa brotið.

Lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki:

58. gr. Þagnarskylda.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.

Nú er ég ekki lögmenntaður maður en... fer Tryggvi ekki í það minnsta ansi langt í upplýsa um viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þarna

 

 


Frelsið er yndislegt

Nú er maður nýkominn frá Mallorca og er að lesa upp fréttirnar sl. vikur. Stundum held ég að við séum ekki í lagi þegar maður les að Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgarstjóri, vilji að ÁTVR í miðbæ RVK hætti að selja bjór. Og fyrst ÁTVR sjái sér ekki fært að hætta söluna hvort að ekki sé í það minnsta hægt að selja hann heitan.... 

Borgarstjóri hefur greinilega nóg að gera við að berjast við plágur úr sína nánasta umhverfi... fyrst mávar og nú rónar. Þessi greindi borgarstjóri hefur dregið þá ályktun að rót rónavandans sé kaldi bjórinn sem ÁTVR selur...  

 En ef við gefum okkur að borgarstjórinn hafi rétt fyrir sér... hver er þá afleiðingin sem hann sækist eftir með heitum bjór nirrí bæ? Samkvæmt lógíkinni þá rónar að flytjast til eftir jöfnunni

|æskilegt hitastig bjórs| + verð á bjór = góðar aðstæður fyrir rónavöxt

 


I´m just a cook

Ég tók mig til í gærkvöldi og bjó til næst bestu pizzu í heiminum. Hún hefði verið sú besta ef ég hefði ekki látið Jóa fel eftir að búa til deigið. Furðulegt hvað hann Jói Fel getur afkastað pizzudeiginu...

Ekki mun ég upplýsa hver galdurinn er nema að ég gef kannski smá hint:

 

Rjómaostur... sterkt pepperoni... sólþurrkaðir tómatar... sveppir.... paprika... og garlic olífuolía! 

 


Ein fyrir helgina...

Ég bíð ennþá eftir að Fóstbræður verði gefnir út á DVD. Svo maður geti rifjað upp gömlu góðu dagana þegar grínleikur var fyndinn á Íslandi. Stelpurnar eiga spretti en því miður eru þær alltof stilltar. Spaugstofan er auðvitað á hinum hæfileikalausa ríkisspena og fyrir löngu hættir að hafa skírskotun til venjulegs fólks. Foreldrar mínir horfa á Spaugstofuna einungis af skyldurækni "coz they were funny once". Hvar er hin ósýnilega höndin frjáls markaðar....  Ætli hún sé ekki erlendis!

 

Hérna eru gullmolar íslenskrar grínmenningar! 

http://www.youtube.com/watch?v=YBODIM9XCbM

http://www.youtube.com/watch?v=B6m5BkhlYmc

http://www.youtube.com/watch?v=3Ano6gl2QgA


Verður hann með titrara líka?

Rosalega sniðugt að geta hrist símann til að hringja í ákveðið númer. Sorry að ég hringdi í þig... ég er bara alltaf að missa símann. Hringir síminn þá líka í þetta númer þegar maður er með stillt á vibrate?

 


mbl.is Nokia veðjar á hreyfiskynjara og snertiskjái
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpsskápurinn...

Jæja þá er búið að redda skáp undir sjónvarpið... 

 Ég tók mig til um daginn og leitaði út um allt að réttum lit og stærð sem passaði. Ég fann rétta litinn en skápurinn var einum of stór. Ekki deyr maður ráðalaus við slíkt heldur hringir í pabba sinn og gefur honum eitthvað til að hugsa um.

Leið og pabbi kom frá Toscana þá kom kallinn og lét einhvern vin sem sem er með nægjanlega fína sög í þetta verkefni og reddaði hlutunum... Nú getur fólk semsagt horft á sjónvarpið heima hjá mér án þess að vera niðurlúkt.

 

 


Húsgögn - Leitin mikla

Nú er ég leita að sjónvarpsskáp eða einhverju sem getur staðið undir sjónvarpinu mínu. Ég hef ákveðnar skorður um liti, breidd og hæð. Það sem fer í taugarnar á mér er að ég get ekki leitað eftir þessu líkt og maður leitar eftir bíl.

Væri það ekki draumur allra að geta sett inn í leitarvél: Mig vantar skáp undir sjónvarp, max breidd er 80cm, max hæð 70cm og verður að passa við eikarbrúnt og hvítan lit...

Síðan fengi maður bara upptalningu á því og þyrfti ekki að eyða heilu dögunum í að finna einn helv. sjónvarpsskáp!

 Hef heyrt sögur af fólki sem hefur verið í heilt ár að leita eftir ákveðnum húsgögnum. Ég bíð spenntur eftir að geta pantað húsgögn af netinu. Maður gæti hreinlega sett inn teikninguna af íbúðinni og fengið tillögur líkt og með bókakaup hjá amazon.com. 


Morgunblaðið er rugludallur...

Morgunblaðið er eins og góður boxari. Gaman að horfa(lesa) á hann en um leið og hann opnar munninn þá fær maður kjánahroll.

Hingað til hefur það ekki verið venja hjá mér að lesa Reykjavíkurbréf blaðsins en um sl. helgi þá hafði ég óvænt auka tíma vegna skorts á knattspyrnu. Þann tíma nýtti ég til lestur Reykjarvíkurbréf sem  betur hefði farið í fuglaskoðun.

Morgunblaðið notaði tvær opnur til að tala um þá hættu sem samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hefði á Sjálfstæðisflokkinn. Nú væri X-D að leiða Ingibjörgu til áhrifa og í því fælist mikil áhætta fyrir flokkinn. Var það semsagt stefna Sjálfstæðisflokks að halda niðri Samfylkingunni en ekki að stuðla að sem bestri stjórn fyrir landsmenn? Síðan talar blaðið um hin frábæra ráðherra Björn Bjarnason og vilja meina að vegna þess að fólk strikaði hann út þá verði flokkurinn að halda honum inni sem ráðherra... verðum við þá ekki að gera Árna Johnsen að forsætisráðherra vegna þess að hann var settur í fangelsi og strikaður út...

 Persónulega held ég að þetta sé besta mögulega stjórnarmynstrið(sem nú liggur fyrir) og raunar það eina sem ég get sætt mig við sem frjálslyndur hægri krati. Fyndnast við þetta er að hlusta á stjórnmálaskýrendur tala um hvar flokkana greinir á í stefnuskrám. Það vill svo til að í mörgum málum er Samfylkingin miklu öflugri erindreki athafnafrelsis, sb. landbúnaðarmál. Það er reyndar mín skoðun að frjálslyndir jafnaðarflokkar eigi að vera mun sterkari á sviði einstaklingsfrelsis en til að mynda flokkur eins og Sjálfstæðisflokkur sem er í eðli sínu íhaldsflokkur.

 Vonandi heldur Samfylkingin haus og leyfir frjálslyndi og einstaklingsfrelsi að fá góðan sess í samfélagi okkar.

 


Slæm tíðindi

Ég hefði persónulega viljað að John Terrier spilaði með í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar... en svona er boltinn ósanngjarn. Það ku þó allavega vera fínt veður á Portúgal fyrir hundinn..
mbl.is Hundur Mourinhos sendur til Portúgals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

John Terrier

Mourinho ætti að vita betur og setja Terrierinn sinn í sóttkví eftir ferðir erlendis.
mbl.is Mourinho handtekinn eftir „hundadeilur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar hinna óákveðnu

Góður sjálfstæðismaður bauð mér heim til sín sl. laugardag til að fylgjast með úrslitum kosninganna. Þetta byrjaði illa fyrir stjórnina sem fór lægst niður í -3 en rétti síðar hlut sem og vann stórsigur með eins manns meirihluta. Sjálfstæðismennirnir í boðinu voru snöggir að taka fram kampavínið um leið og fréttir bárust af því að stjórnin héldi velli. Þeir urðu að drekka hratt því að næstu tölur felldu ríkisstjórnina aftur.

Það sem einkenndi kosninganóttina var hvað helst hvað kosningakerfi okkar er illskiljanlegt. Nú er ég tölvunarfræðingur og ágætlega að mér í stærðfræði en þegar kemur að kosningakerfinu þá hreinlega skil ég hvorki upp né niður.

Ég skil þetta svo að 4 þingmenn séu landskjörnir sem taka út síðasta kjördæmiskosna þingmanninn en ég veit ekkert hvernig þetta virkar... Og einhverra hluta vegna þá hefði stjórninn fallið ef að Framsókn hefði fengið örlítið meira af atkvæðum... þá hefði sjálfstæðiflokkur misst 2 jöfnunarmenn...

Fyrir næstu kosningar legg ég til að þessu verði breytt þannig að fólk geti fylgst með þessu og skilið um leið hvað sé í gangi.... Einnig er skrýtið að við sem gerðum grín að BNA fyrir að geta verið með forseta sem hefði minnihluta atkvæða.... öhh við erum með sitjandi ríkisstjórn sem hefur minnihluta atkvæða... hvaða tölfræðivitleysingar hanna svona kerfi.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband